Póstkortamorðin
EAN13
9788728542170
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Póstkortamorðin

SAGA Egmont

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788728541968
    • Fichier EPUB, avec Marquage en filigrane
    6.99

  • Aide EAN13 : 9788728542170
    • Fichier MP3, libre d'utilisation
    8.99
Hvað gerist þegar fríið breytist í martröð og morðingi lætur ekkert stöðva sig
– ekki einu sinni landamæri? Rannsóknarlögreglumaðurinn Jacob Kanon einsetur
sér að komast að því.

Á ferðalagi í Róm er ungt bandarískt par myrt. En þau eru ekki þau einu – ung
pör finnast myrt í fleiri borgum Evrópu og öll eiga morðin það sameiginlegt að
dagblöðum á staðnum eru send póstkort áður en morðin eru framin.

Jacob Kanon er rannsóknarlögreglumaður í New York og faðir eins
fórnarlambsins. Hann er staðráðinn í að ráða gátuna og koma höndum yfir
morðingja dóttur sinnar, en allt kemur fyrir ekki. Þegar sænska blaðakonan
Dessie Larsson fær enn eitt póstkortið sem virðist spá fyrir um morð, í
Stokkhólmi í þetta sinn, taka þau höndum saman og komast fljótt á slóðir
morðingjans.

Þegar bókin kom út fór hún beint á topp sænska metsölubókalistans. Hún tróndi
einnig á toppnum á metsölulista New York Times, sem er aðeins í annað sinn sem
verk sænsks höfundar lendir þar.

James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans
hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda
verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem
efla læsi í skólum víða um Bandaríkin.

Liza Marklund (1962) er sænskur metsölubókahöfundur. Hún er þekktust fyrir
bækur sínar um rannsóknarblaðakonuna Anniku Bengtzon, en sjálf hefur Liza
starfað sem rannsóknarblaðakona.

Bókin fær 3,8 stjörnur hjá notendum Goodreads.
S'identifier pour envoyer des commentaires.